Í hjarta Shimba Hills í Kenya

- Sérsniðin upplifun fyrir hópa -

Welcome to Forest view - Shimba Hills in Kenya

Í hjarta Shimba Hills

Í útjaðri frumskógarins sem þekur Shimba Hills þjóðgarðinn í Kenya er húsið Forest View með útsýni yfir Sable dalinn. Glæsilegt 5 herbergja húsið er í eigu hjónanna Borgars og Elínar sem ákváðu eftir 30 ára flakk um Austur-Afríku að reisa hús í frumskóginum innan um villt dýrin.

Hér er tilvalið fyrir vini og fjölskyldur að upplifa frið og ró innan um fugla og frumskóginn í Shimba Hills. Auðvelt er að fara í stuttar gönguferðir frá húsinu og kynnast aðeins mannlífinu í þorpunum allt í kring. Frá húsinu er innan við klukkutíma akstur niður að Diani ströndinni með sínu litríka og fjölbreytta mannlífi. Við skipuleggjum einnig safaríferðir í marga af þeim einstöku þjóðgörðum sem eingöngu finnast hér í Kenya.

Innblásið af sögu okkar, umvafið náttúru og hannað fyrir dásamlega upplifun

Umvafin náttúru fyrir dásamlega upplifun

Þægindi og afslöppun

Allt sem þarf fyrir þægilega dvöl

Akstur til og frá flugvelli
Þrif á herbergjum
Þráðlaust net
Þvottaþjónusta
Sundlug
Kæliskápur

Bókanir

Viltu vita meira um bókun á húsinu, safaríferðir og aðra þjónustu sem við bjóðum upp á? Vinsamlegast hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um verð og tilhögun. Við hlökkum til að heyra frá þér!

Close
Close