fjallganga

Mt Kenya - hæsta fjall Kenya - nóvember 2021

Horft upp til Mt. Kenya

Í Kenya er annað hæsta fjall Afríku og ber nafn landsins: Mt. Kenya. Það er 5.199 metra hátt og hefur þrjá tinda, Batian (5.199m), Nelion (5.188m) og Lenana 4.985m).  það er Lenana tindurinn sem að stefnan er tekin á í þessari fjölbreyttu en nokkuð krefjandi göngu. Það er ekki tæknilega erfitt að komast á Lenana tindinn en hæðin er mikil og minna súrefni en við sjávarmál. Landslagið er fjölbreytt og gengið er í gegnum nokkur gróðurbelti en efst á fjallinu er von á snjó.

Kilimanjaro - 2022

Fjallagarpar á Uhuru tindinum

Upp frá sléttum Tansaníu rís Kilimanjaro hæsta fjall Afríku og teygir sig í 5.895 m hæð yfir sjávarmáli. Við hjá Afrika.is höfum skipulagt fjölmarga leiðangra á „Kili” í gegnum árin og aðstoðað nokkuð hundruð Íslendinga við að ná takmarki sínu að standa á toppi Kilimanjaro.